
FJÓRAR LYKILVÖRUR - TVÆR LEIÐIR
Viðsnúningur · Umbreytingar · Vöxtur
Sömu fjórar vörurnar, hvort sem við rekum verkefnið alla leið eða ráðleggjum stjórnendum svo þeir reki það sjálfir. Þú velur aðkomuna, ekki vöruna.
Stefnumótun
Skýr svör við því hvar félagið á að vera, hvað það gerir til að komast þangað og hvað það hættir að gera. Mæld, tímasett og í höndum þeirra sem eiga að framkvæma hana.
Umbreytingar
Breytingar á því hvernig félagið er rekið og hvernig fólk vinnur - skipulag, ferlar, AI-tól og ytri breytingar. Við leiðum vegferðina eða styðjum stjórnendur í henni.
Viðsnúningur og endurskipulagning
Þegar reksturinn hefur staðnað eða er í vanda: endurskipulagning, samþætting eftir samruna og straumlínulögun - með lykilfólkið tryggt og eftirfylgni alla leið.
Mannauður
Rétta fólkið í réttu hlutverkin og menning sem skilar árangri. Við tryggjum lykilfólk, ráðum stjórnendur og lögum hvernig fólk vinnur saman - svo breytingin haldi eftir að við förum.
HVERNIG VIÐ KOMUM INN
Framkvæmdastjóri eða mannauðsstjóri til leigu · tímabundið stjórnunarhlutverk · fastir dagar í áskrift · eða ráðgjöf þegar þið framkvæmið sjálf.
Lestu greinina: Viðsnúningur fyrirtækja - sex atriði sem ráða úrslitum →
FYRSTA SKREFIÐ
Við byrjum alltaf á fundi
Fyrsta skrefið er alltaf að hittast og skilja þarfir félagsins. Engin tvö félög eru eins og við gefum okkur ekkert fyrirfram. Ertu ekki viss hvort þú þarft rekstur og innleiðingu eða ráðgjöf? Það er einmitt það sem við finnum út saman.
Bókaðu fund, við ræðum stöðuna og þú færð skýra tillögu um næstu skref áður en þú ákveður nokkuð.
